Brot úr lífi ungrar stúlku....
Annað frá mér
17.05.2007 00:22:11 / ungfruyrsa

Betra er seint en aldrei :-)

Ef einhver skyldi ekki vita það þá er ég löngu komin með nýtt blogg: www.blog.central.is/selfossgydja

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.08.2006 09:17:53 / ungfruyrsa

Krít

Komin heim frá Krít :) Seinna verður hægt að skoða myndir úr ferðinni á www.baugstjorn28.barnaland.is


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.07.2006 20:10:00 / ungfruyrsa

Fyrsti í sumarfríi

Jæja, núna er sumarfríið skollið á. Skellti mér í bæinn í daginn og tók því rólega. Ekki laust við það að veðrið sé að skána. Í það minnsta var rjómablíða á Selfossi í morgun.

Börnin komu til okkar seinnipartinn í dag og verða hjá okkur næstu tvær vikurnar - æðislegt að hafa þau svona lengi. Var að enda við að skella í þrjár pizzur og fékk aðstoð frá Agnesi Höllu pizzugerðarprinsessu og Herði pylsugerðarmanni. Tóku bæði hlutverk sitt háalvarlega þessar elskur 8) Jóhannes er að hjálpa pabba sínum að slá garðinn og setja saman nýju brúna okkar sem verður í garðinum. Stendur til að gera garðinn dálítið fínan í fríinu.

Í næstu viku ætlum við svo að skreppa í veiði vestur á firði og eftir það ætlum við Eggert til Krítar í eina viku. Þessi elska bauð mér í sólina þar sem hana er ekki að finna hér :haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.06.2006 11:41:35 / ungfruyrsa

Smá fréttir af mér :-)

Hef ekkert verið alltof dugleg að blogga en það gerir mig ekki að verri manneskju ;)

Hefur verið nóg að gera hjá mér undanfarið. Flutti á Selfoss í maí þar sem mér líður dásamlega vel. Finnst bærinn einstaklega vinalegur og er virkilega að njóta þess að búa hér. Allir ávallt velkomnir í kaffi og kósýheit hjá mér ;)

Skellti mér í dásamlega ferð til Ítalíu í byrjun júní. Á ekki til orð til að lýsa undursamlegheitunum en get fullvissað ykkur um að mér hefur aldrei liðið eins vel og þarna úti. Á pottþétt eftir að kíkja aftur þangað út. Fyrir þá sem hafa áhuga er hægt að lesa sér til um staðinn sem ég fór til á http://www.damanhur.info/ 

Allar kjaftasögur eru vel þegna í kommentin ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.04.2006 15:16:35 / ungfruyrsa

Hamingjusöm frænka

Ég hef eignast yndislega frænkumús Magga- og Jennyjardóttur 8)  Fæddist þeim 25. apríl síðastliðinn og hefur hlotið nafnið Aþena Ugla. Barnið er dásamlega fagurt eins og er víst algengt í þessarri ætt ;)

Getið kíkt á skvísuna á www.barnaland.is/barn/43955


» 13 hafa sagt sína skoðun

18.04.2006 22:59:54 / ungfruyrsa

Tannlaus og bíllinn í rúst!!

I´m back og meiri klaufi en ever 8)

Í gærkvöldi ákvað ég að skella mér í bólið á dísent tíma þar sem vinna var daginn eftir og gott að ná sér niður eftir páskafríið. En ekki var Adam lengi einn í Paradís...ég fæ skyndilega heiftarlega tannpínu!!! og ætla aldrei að geta sofnað. Bylti mér á alla kanta í rúminu og reyni að telja kindur og ýta verknum til hliðar. Um tvö-leytið átta ég mig á því að litli geðsjúklingurinn á "svefntöflur" eftir síðustu heimsókn á geðdeildina.  Stekk upp og sporðrenni einni töflu...og það var eins og við manninn mælt, mín lognast útaf eins og hvítvoðungur eftir mjólkursopann. 

Vakna svo í morgun með timburmenn dauðans :klikk: Svefntaflann hafði víst þessi líka svakalegu áhrif á mig. Fæ mér kaffibolla og sest við tölvuna í smástund. Tannpínan var enn að angra mig og pirraði það mig big time að eiga ekki tíma hjá tannlækni fyrr en eftir viku. Bruna svo af stað í vinnuna og er komin á góðum tíma - tími fyrir einn kaffibolla eða svo. Finn stæðið "mitt" - er svo vanaföst að ég verð alltaf að leggja við sama ljósastaurinn...en úbbs eitthvað gekk þetta illa. Var víst komin hálf upp á gangstétt - ákveð því að rétta bílinn af en heyri þá hroðalega skruðninga. Lít til hliðar og sé að ég er að strauja hliðarspegilinn af bílnum mínum!!!!!!  Í slow motion horfi ég á vin minn ljósastaurinn þrýsta speglinum aftur á bak og mölbrjóta hann 8|

Þegar þarna var komið við sögu vissi ég ekki hvort ég ætti að hlægja eða gráta. Ákvað að gera hvorugt og ráfaði fjúríus af reiði inn í vinnuna.  Mætti uppdópuð, sárkvalin af tannverk og sjúklega pirruð upp á deild þar sem ég mæti systur minni og er risið á henni heldur lágt.  Spyr ég hana hvað ami að og þá segir hún: "Oh, ég nenni ekki til tannlæknisins. Á tíma hjá honum en hef ekkert að gera þangað - viltu kannski skipta við mig??" og ég var ekki enn búin að segja henni frá tannpínunni, og hún vissi ekki einu sinni að ég ætti tíma þar fljótlega.  Ég lét ekki bjóða mér það tvisvar, brunaði til Gunnsa sem neyddist til að rífa úr mér jaxlinn :cry:

Ég er því tannlaus og bíllinn í rúst...en annars var þetta meiriháttar dagur :haha:


» 7 hafa sagt sína skoðun

05.03.2006 23:17:51 / ungfruyrsa

Topplistinn

Hvaða lag var á toppnum daginn sem þú fæddist?

http://www.geimur.is/link.php?id=31056

15. júní 1977 ... "Dreams" by Fleetwood Mac

Var ekki að kveikja hvað lag þetta var svo ég dánlódaði því af netinu og er bara alveg að kunna vel við það ;)


» 12 hafa sagt sína skoðun

22.02.2006 12:02:18 / ungfruyrsa

Skák og mát

Á einstaklega elskulegan bróður. Ligg heima í flensu og í gær leiddist mér stórkostlega. Maggi bróðir hringdi og plataði ég hann til að koma við á videóleigu fyrir mig en hann var einmitt á leið hingað í heimsókn.

Planið var að hann myndi hringja í mig þegar hann væri kominn á videóleiguna þar sem við höfum ákaflega ólíkan kvikmyndasmekk.  Það klikkaði ekki, ég fékk hringinguna frá honum.  Til að byrja með vorum við með þvílíkan kjánagang og fannst okkur við vera einstaklega fyndin. "Á ég að taka....?", "nei, taktu þessa...!" - og svo hlógum við brjálað mikið.  Maggi hótaði að taka myndina Secondhand Lions þar sem hann vildi meina að Michael Caine væri í þvílíku uppáhaldi hjá mér. Svo gjörsamlega veinuðum við úr hlátri því okkur fannst svo fjarstæðukennt að leigja mynd með þeim ágæta leikara Michael Caine.

Á endanum fékk ég hann til að taka myndirnar Bewitched og The Cider House Rules, sem hann og gerði. Ég hlammaði mér fyrir framan sjónvarpið og skellti fyrri myndinni í tækið. Í byrjun myndarinnar kom upp listi með leikurunum og rek ég augum í nafnið Michael Caine og gat ekki annað en hlegið. Stuttu síðar birtist eldri maður á skjánum og ég fatta að þetta er Michael! Ríf upp hulstrið utan af The Cider House Rules - og viti menn!!!!! Michael Caine leikur líka í henni :haha:

Skák og mát - mátulegt á mig fyrir að vera að hlægja að einhverjum leikara :klikk:


» 19 hafa sagt sína skoðun

09.02.2006 20:29:31 / ungfruyrsa

Bara snilld :-D

Sérstaklega fyrir mína kæru vinkonu Ragnhildi ;) 

Ósk Ýr gekk rösklega með Brand Ara í afmælið til Egils Daða því hún var að verða of sein að sækja Leif Arnar og Loft Stein í leikskólann.

Borgar Vörður, pabbi Egils Daða, tók á móti þeim.  Þarna voru Lind Ýr, Líf Vera, Sól Hlíf og Hreinn Bolli.

Erlendur Hreimur kom blaðskellandi innan úr stofunni og vinkonurnar Vísa Skuld og Dís Ester fast á hæla honum.

Mýra Þoka lét lítið fyrir sér fara úti í horni.

Innan úr herbergi Egils Daða bárust ógurlegir skruðningar - "#%=&#$&/(=!z#$!/!=!

Línus Gauti, Barði Vagn og Mist Eik voru greinilega mætt. En hvar var Ríta Lín?

Fyrir utan var Sædís Hlíf í rauðum fólksvagni.  Hægt og sígandi nálgaðist Jökla Þoka eftir stígnum. 

Hún var orðin alltof sein í afmælið. 


» 6 hafa sagt sína skoðun

04.02.2006 19:09:18 / ungfruyrsa

Vika þrjú ;-)

Minnir að ég hafi einhvers staðar lofað vikulegu bloggi *hóst* - eigum við ekki bara að hafa það mánaðarlegt eða svo ;)

Ég var sett í dag, 4. febrúar en er nú nokkuð viss um að ég hefði gengið fram yfir og átt þann 19. febrúar.  Hefði verið enn eitt sem við Ragga vinkona mín eigum sameiginlegt :D Bjartur, eldri sonur hennar Röggu, er fæddur 19. febrúar. Við Ragga erum báðar með geðhvörf II, höfum báðar fengið blóðtappa í vinstri fótlegg, erum báðar fjarsýnar og með sjónskekkju, fengum báðar Dry socket þegar endajaxl var dreginn úr okkur, eigum báðar bræður sem eru fæddir 1981 og eru að verða pabbar núna á fyrstu mánuðum ársins, og eigum svo sameiginleg fullt af "smávægilegum" atriðum til viðbótar.

Undanfarið hefur verið nóg að gera hjá mér. Þegar ég er ekki að vinna þá er alltaf þétt dagskrá í gangi. Fór á Minningar geisju með Arngunni um daginn og viku síðar á Rumor has it með Arngunni og Maríu.  Fer ansi sjaldan í bíó svo það að fara tvisvar með stuttu millibili er nokkuð gott.  Ætla svo trúlegast að skella mér í bíó annað kvöld með Sigrúnu á myndina Walk the Line og fer svo á Pride and prejudice með saumaklúbbnum á mánudagskvöldið :haha: Eins og margir vita þá er Johnny Cash í miklu uppáhaldi hjá mér - hver man ekki eftir því þegar hann var í öðru sæti á "Langar til að sofa hjá"-listanum mínum? Það var bara einn sem skákaði honum og það var Jósef Stalín :!:

Nú auglýsi ég bara eftir einhverjum til að fara með mér á Brokeback Mountain ;)


» 8 hafa sagt sína skoðun

22.01.2006 16:38:06 / ungfruyrsa

Ekki alveg að standa mig :-)

Búið að vera nokkuð mikið að gera hjá mér undanfarið.  Er verið að umbylta öllu í leikskólanum með tilkomu þess að við erum móðurskóli Hjallastefnunnar í Reykjavík. Á laugardagsmorgun var ég að vinna upp í Laufásborg. Vorum að henda út úreltum efnivið og setja inn nýjan, auk þess sem við vorum að taka til í skápum, hillum og fleira.  Um næstu mánaðamót tek ég svo við sem kjarnastjóri svo ég þarf að fara að setja mig í gírinn.

Eftir Laufásborgarvinnuna fór ég upp í Ljósheima að spá og svo að vinna aðeins í heimavinnunni fyrir næsta miðvikudagskvöld. Ég elska það að vera í Ljósheimum, orkan þar er æðisleg og manni getur ekki annað en liðið vel þarna inni.

Hef ákveðið það formlega (er m.a.s. búin að skrá mig) að fara með Ljósheimum til Damanhur (http://www.damanhur.info/en/html/home.asp) í byrjun júní og dveljast þar í 10 daga. Held vart vatni af spenningi. Er svo að gæla við það að bjóða sjálfri mér með þeim til Egyptalands eftir ár þegar ég verð þrítug 8)


» 5 hafa sagt sína skoðun

10.01.2006 11:24:37 / ungfruyrsa

Verð að standa við vikulegar færslur ;)

Annáll ársins 2005

  •  Var mikið veikindaár hjá mér – bæði andlega og líkamlega. Fyrri part árs var þunglyndi mitt mikið að stríða mér og var ég greind með geðhvörf II í framhaldi af því - andleg heilsa mín er á góðum stað í dag :) 
  •  Líkamleg heilsa mín var ansi furðuleg á árinu, allt frá veseni í móðurlífi í kjölfar fósturmissis til blóðtappa í fæti. Var tvisvar lögð inn á spítala og stóð til þess að gera það tvisvar í viðbót – í dag er líkamleg heilsa mín á mjög góðum stað :) 
  •  Bjó á tveimur stöðum á árinu; fyrst leigði ég í Gvendargeislanum en flutti svo til parents þar sem ég bý enn. – Var dálítið einmanalegt að búa ein svo ég verð að segja að ég bý á góðum stað í dag :) 
  • Ég lagði stund á nám í tveimur skólum á árinu 2005. Var í óðaönn að vinna í því að bæta við mig leikskólakennaranum í KHÍ en fann mig ekki alveg í því námi. Átti ekki við mig að vera í fjarnámi með fullri vinnu. Um haustið hóf ég nám við Ljósheimaskólann og finnst æðislegt að vera þar – er því stödd á mjög góðum stað skólalega séð :) 
  • Á árinu skipti ég um vinnu – fyrri part ársins vann ég í helvíti en færði mig svo yfir í himnaríki. Er mjög sátt við að hafa fært mig og finnst ég vera stödd á mjög góðum vinnustað :)

Um helgina var mér boðin smá aukavinna sem ég kem til með að sinna á laugardögum niðri í Ljósheimum. Felst starfið í því að lesa í tarotspil fyrir þá sem þess óska. Eins ætla ég að skoða fyrri líf þeirra sem þess óska. Leggst mjög vel í mig og hlakka ég virkilega til. Fékk forsmekkinn af þessu á Ljósheimadeginum í fyrradag – sem heppnaðist by the way frábærlega. Þið sem hafið áhuga á þessu getið kíkt inn á www.ljosheimar.is og pantað ykkur tíma ;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

01.01.2006 19:58:44 / ungfruyrsa

Gleðilegt nýtt ár kæru vinir

Gott að byrja árið á einni færslu hér inni :lol:

Hef ekki farið úr náttfötunum í allan dag. Hef setið og prjónað milli þess sem ég hef verið að lesa. Ótrúlega furðulegt að árið 2005 sé allt í einu búið 8| og komið 2006, sem mér finnst ljótari tala :(

Hef sett mér það markmið að vera duglegri að blogga á nýju ári, helst eina færslu á viku. Tek það fram að þetta er markmið en ekki áramótaheit ;)


» 9 hafa sagt sína skoðun

19.11.2005 23:27:09 / ungfruyrsa

Er ég með slæman smekk eða...?

Mér finnst konur á mínum aldri vera slefandi yfir einhverjum súkkulaðigæjum sem mér finnst ekkert varið í og veit ekki einu sinni hverjir eru. Hef það á tilfinningunni að minn smekkur sé hálf glataður fyrir konu á þessum aldri ;)

Gefið smekknum einkunn frá 0-10 :D  verð að hafa einn súkkulaðigæja með...

Mínir menn:

Landó
- http://www.amuseyourself.com/celebrity-symmetry/orlando-bloom-xxx.jpg

Goggi
- http://www.clooneynetwork.com/clooneyworld/images/pics/general/george-clooney-elle.jpg

Eddi
- http://www.estarguapa.com/belleza/ellos/pelo/tratamientos/caida/imagenes/ed_harris.jpg

Sean eldri
- http://www.saigonnet.vn/gallery/gallery/Actor/Tay-Au/Sean-Connery/006.jpg

Robbi
- http://www.all-pictures-photos.com/images/robert-de-niro/robert-de-niro-004-img.jpg

Sean yngri
- http://www.movieup.it/Autografi/penn,%20sean.jpg


» 62 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5